Education and Training 2010: Three studies to support School Policy Development

Áhugaverð skýrsla , Education and Training 2010: Three studies to support School Policy Development unnin af Finnish Institute for Educational Research í Jyväskylä, gefin út í Apríl 2010.  

Í skýrslunni kemur m.a. fram:
‘The Common European Principles for Teacher Competences’ (2005) and the Commission’s Communication ‘Improving the quality of TE’ (2007) have served as backgrounds to the study. They have identified the quality of teaching and Teacher Education as a key factor in securing the quality of education and improving the educational attainment of young people. According to the results of the study, the current situation concerning these two TE documents can be assessed as follows:

Both papers emphasise the professionalism of teachers as the profession should be attractive for young people. A well-qualified teacher profession with diversified knowledge, skills and competences has been stressed. Pedagogical and subject competences have been traditionally stressed in TE, also the importance of the relationship between theory and practice has been noticed widely. On the other hand, some skills and competences which have been more current during recent years have not yet been sufficiently taken into consideration when developing TE. For example, teaching heterogeneous classes as well as more effective understanding of pupils and students from different cultural backgrounds should be taken more seriously in TE curricula.

Both papers consider it important that the teacher profession should be closely tied to the surrounding society and the actors there. This is why co-operation and collaboration skills as well as improving communication skills will be even more significant in the future than they have been until now. According to the results of this study, such issues have not been given the consideration they deserve in TE documents.

Both papers emphasise lifelong learning principles and personal development in the teaching profession. These issues must have more attention in the future. To promote the idea of continuum in the teaching profession, there must be an assumption that the induction phase for a newly qualified teacher has to be developed and supported more effectively than so far, and that more attention should be paid to teachers’ in-service education than nowadays. Even now teachers’ in-service education has not been developed properly in many Member States and even in those countries where it is obligatory for teachers, the amount is insufficient and skills and competences which should be included in in-service TE have not been examined comprehensively.“

Posted in Uncategorized | Tagged | Comments Off on Education and Training 2010: Three studies to support School Policy Development

Fjórði fundur um kennaramenntun í deiglu

Efni frá fjórða fundi um kennaramenntun í deiglu er komið inn á vefinn. Á þeim fundi  var fjallað um hæfni kennara og leiðir í menntun. Rætt var um nýja skipan náms leik-, grunn- og framhaldsskólakennara á Menntavísindasviði.

Anna Kristín Sigurðardóttir, deildarforseti Kennaradeildar, flutti  inngangsorð og síðan skipuðu fundarmenn sér í þrjár málstofur, eftir skólastigum. Í hverri málstofu greindi námsbrautarstjóri viðkomandi skólastigs  frá tillögum um nýja skipan kennaranáms og síðan fjallaði fagfólk um hvað það álítur mikilvægt veganesti inn í starfið fyrir hvert skólastig fyrir sig.

Leikskólakennarafræði

Ný skipan náms  Kristín Karlsdóttir, formaður námsbrautar í leikskólakennarafræði
Sjónarhorn starfandi leikskólakennara  Marta Dögg Sigurðardóttir, leikskólakennari

Samantekt

Grunnskólakennarafræði

Ný skipan náms  Kristín Jónsdóttir, formaður námsbrautar í grunnskólakennarafræði
Sjónarhorn starfandi grunnskólakennara Guðbjörg Ragnarsdóttir, grunnskólakennari

Samantekt

Fagreinakennarar

Þekking og hæfni faggreinakennarans og ný skipan náms Hafdís Ingvarsdóttir, formaður námsbrautar í framhaldsskólakennarafræði
Menntun faggreinakennara  Eiríkur Rögnvaldsson, deildarforseti við Háskóla Íslands
Menntun faggreinakennara  Anna María Gunnarsdóttir, framhaldsskólakennari

Samantekt umræðu

Upptökur:

Málstofa um nýja skipan nám í leikskólafræði

Málstofa um nýja skipan náms í grunnskólakennarafræði.

Framhaldsskóli

Posted in Efni frá Íslandi | Tagged , , , | Comments Off on Fjórði fundur um kennaramenntun í deiglu

Efni frá þriðja fundi um kennaramenntun í deiglu

Sett hafa verið inn á vefinn  erindi þriðja fundar um kennaramenntun í deiglu og einnig samantektir úr umræðu fyrsta og annars fundar.

Þriðji fundur; Menntun kennara á vettvangi og tengsl við þróun skólastarfs

Upptaka af þriðja fundinum

Hvað merkir samábyrgð í kennaranámi?
Þuríður Jóhannsdóttir, lektor við Menntavísindasvið, fjallaði um ólíkar leiðir sem fara mætti í þróun kennaranáms
og mikilvægi þess að tengsl akademísks náms og starfs á vettvangi rofni ekki. Hún ræddi  um hugtakið ábyrgð og lagði til að  hugtakið samábyrgð verði notað sem leiðarljós í umræðu um þróun kennaramenntunar.

Starfsþjálfun í menntun framhaldsskólakennara og tengsl við þróun í skólastarfi
Ingibjörg Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð og verkefnisstjóri við starfsþjálfun kennaranema, rakti hvernig samstarfi framhaldsskóla og Menntavísindasviðs er háttað. Hún sagði ferlið mikilvægt fyrir alla aðila, kennaranemann,  leiðsagnarkennarann og heimaskólann. Nemarnir sæki mikilvæga reynslu, en komi jafnframt með hugmyndir, nýjungar og ný sjónarmið út í skólana.
Vangaveltur um vettvangsnám kennaranema frá sjónarhóli leikskólans
Ingibjörg E. Jónsdóttir, leikskólastjóri í leikskólanum Bakka og verkefnisstjóri við starfsþjálfun kennaranema, fjallaði um þann ávinning sem leikskólinn hefur af því að hafa kennaranema í vettvangsnámi og hvernig það ætti að vera skipulagt til að það skili árangri fyrir skólann. Hún sagði frá reynslu leikskólans af því að taka á móti kennaranemum síðustu fimm árin og hvernig samstarfið hefur eflt starfið í leikskólanum og kennaranna sem þar starfa.

Samantekt umræðu

Posted in Uncategorized | Tagged | Comments Off on Efni frá þriðja fundi um kennaramenntun í deiglu

Samburðarrannsókn á menntun kennara í 4 löndum

 Samburðarrannsókn á menntun kennara í Kanada, Danmörku, Finnlandi og Singapore. Í formála skýrslunnar sem gefin var út í apríl 2010 segir: “Dette komparative studium af indholdet i læreruddannelser i Canada, Danmark, Finland og Singapore er gennemført for Regeringens Rejsehold i forbindelse med det 360 graders eftersyn af folkeskolen, som Rejseholdet har gennemført i foråret 2010. Rejseholdet ønskede en undersøgelse af indholdet læreruddannelserne i de lande, hvis elever i skolen præsterer højt i internationale komparative undersøgelser som PISA og TIMMS. Det gør elever i Canada, Finland og Singapore. Studiet er derfor en komparation af indholdet i læreruddannelser i disse tre toppræsterende lande og Danmark, men også en komparation af indholdet i læreruddannelser i de fire lande.”

Posted in Uncategorized | Tagged , | Comments Off on Samburðarrannsókn á menntun kennara í 4 löndum

Menntun kennara á vettvangi og tengsl við þróun skólastarfs

Þriðji fundur um kennaramenntun í deiglu verður haldinn 18. maí  15.00–16.30 í Skriðu, fyrirlestrarsal í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Fyrirlesarar eru Þuríður J. Jóhannsdóttir lektor við Menntavísindasvið, Ingibjörg Sigurðardóttir framhaldsskólakennari og Ingibjörg E. Jónsdóttir leikskólastjóri.

Posted in Uncategorized | Comments Off on Menntun kennara á vettvangi og tengsl við þróun skólastarfs

Greinagerð um skipan náms

Lokið hefur verið við vinnu á Greinargerð um námsleiðir í kennaranámi við Menntavísindasvið HÍ   sem er áfangaskýrsla III um skipan 5 ára kennaranáms.

Posted in Efni frá Íslandi | Comments Off on Greinagerð um skipan náms

Samfélagið og áherslur í kennaramenntun

3. maí kl. 15.00–16.30 í Skriðu, fyrirlestrarsal í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð

Á öðrum fundi fundaraðar Menntavísindasviðs Kennaramenntun í deiglu verður fjallað um samfélagið og áherslur í kennaramenntun. Flutt verða erindi um hlutverk kennaramenntunar í samfélaginu, menntun til sjálfbærni og mikilvægi menntunar í samtímanum.

Upptaka af öðrum fundi um kennaramenntun í deiglu 4. maí 2010.


Fagmennska kennara – kjarni kennaramenntunar
Sigurjón Mýrdal deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti
fjallar um hlutverk kennaramenntunar í samfélaginu. Hann telur að kjarni kennaramenntunar þurfi að snúast um starfskenningu, gildi og hæfni í starfi. Í breytingum sem framundan eru á kennarastarfinu er ástæða til að beina athyglinni sérstaklega að menntastofnunum kennara og starfsmönnum þeirra. Hverjir eru best til þess fallnir að mennta kennara og við hvaða aðstæður? Í hverju er fagmennska þeirra fólgin?


Ábyrgð kennara í ósjálfbærum heimi

Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs ræðir um menntun til sjálfbærni sem nú er ein af fimm stoðum menntunar barna í landinu, en fæstir í þjóðfélaginu skilja hvað hugtakið felur í sér.  Í erindinu gerir Kristín Vala grein fyrir hvers vegna menntun til sjálfbærni er lykillinn að framtíðarvon komandi kynslóða. Hún ræðir um ábyrgð kennara í ósjálfbærum heimi og að sjálfbærni þurfi að vera kjarninn í kennslu allra faga.


Haldbær menntun
Ólafur Páll Jónsson, dósent í heimspeki við Menntavísindasvið
veltir því fyrir sér að á sama tíma og almenn menntun og háskólamenntun hafi aukist á Íslandi, þá hafi íslenskt samfélag líklega verið sífellt fjær því marki að vera sjálfbært, bæði með tilliti til náttúru, efnahags og samfélagsgerðar. Til að velta fyrir sér ástæðum þessa öfuga samspils menntunar og sjálfbærni skoðar Ólafur eðli og inntaki menntunar, fræðilegrar þekkingar og siðferðis.

Posted in Efni frá Íslandi | Tagged , | Comments Off on Samfélagið og áherslur í kennaramenntun

Hugmyndfræðileg átök í kennaramenntun

Grein Jóns Torfa Jónassonar um hugmyndafræðileg átök í mótun kennaramenntunar

Erindi sem flutt var á fundaröð Menntavísindasviðs um kennaramenntun 26.apríl 2010 byggir á þessari grein.

Erindi Jóns Torfa um hugmyndafræðileg átök í mótun kennaramenntunar.

Posted in Efni frá Íslandi | Leave a comment

Upptaka

Hér er hægt er að hlusta á upptöku af fyrsta umræðufundi um kennaramenntun í deiglu 26. apríl 2010.

Posted in Efni frá Íslandi, Upptökur | Comments Off on Upptaka

Fundaröð um kennaramenntun í deiglu

Árið 2008 voru samþykkt lög frá Alþingi um að menntun kennara á skólastigunum frá leikskóla til framhaldsskóla skuli frá og með júlí  2011 ljúka með meistaragráðu. Í kjölfar lagasetningarinnar hófst vinna við skipulag fimm ára kennaranáms í Kennaraháskóla Íslands  og síðan við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. 

Af þessu tilefni boðar Menntavísindasvið til fimm opinna funda á næstu vikum, sjá meðfylgjandi dagskrá. Tilgangur fundanna er í  fyrsta lagi að gefa sem flestum tækifæri til að taka þátt í umræðu um kennaramenntun og í öðru lagi að kynna þær áætlanir um námsskipan sem Menntavísindasvið vinnur að um þessar mundir. 

Umræða um og endurskoðun á kennaramenntun hér á landi er í takt við það sem gerist annars staðar, s.s. í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, þar sem fram fer grundvallarendurskoðun á menntun kennara. Mikið er rætt um kennaramenntun á samnorrænum vettvangi en einnig í fjölmörgum Evrópulöndum utan Norðurlandanna og víða um heim. Álitaefnin eru mörg og tekist er á um inntak kennaramenntunar en rannsóknir staðfesta að kunnátta kennara skiptir sköpum um árangursríkt skólastarf. 

Á hverjum fundi verða stutt framsöguerindi og síðan opnar umræður. Samantekt úr umræðum verður kynnt á síðasta fundi. Verður hún höfð til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við skipulag kennaranáms við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Fundirnir eru öllum opnir.

Dagskrá fundanna

Posted in fréttir | Tagged , , | Comments Off on Fundaröð um kennaramenntun í deiglu