Staða lestrarkennslu í íslenskum grunnskólum . Niðurstöður rannsóknar sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir Menntamálaráðuneytið samkvæmt áætlun sem sett er fram í erindisbréfi dagsettu 10. september 2008. S kýrslan kom út í apríl 2009. Markmið rannsóknarinnar er að kanna stöðu lestrarkennslu í grunnskólum og leita svara við eftirfarandi spurningum: Hvernig er lestrarkennslu háttað í íslenskum grunnskólum? Eru vísbendingar um að formlegri lestrarkennslu ljúki í einhverjum tilteknum árgangi? Hvernig er lesskilningur nemenda þjálfaður? Hvort/hvaða lesskimunarpróf eru notuð í skólunum og hvernig eru þau nýtt? Er lestur, hlustun, ritun og tal meðvitað samþætt í kennslu samanber markmið aðalnámskrár grunnskóla? Hvernig er þörfum vel læsra og torlæsra nemenda sinnt? Hvaða ráðgjöf stendur kennurum til boða þegar kemur að lestrarkennslu? Hver er menntun kennaranna í úrtakinu?