Kennaramenntun á Íslandi

Á undanförnum örfáum árum hefur kennaramenntun víða um lönd verið endurskoðuð í grundvallar­atriðum.

Sá skilningur ríkir að menntun skipti sköpum fyrir eðlilega þróun hvers samfélags og gæði menntunar fari að verulegu leyti eftir því hve vel sé að henni búið, einkum að því er lýtur að menntun kennara. Þess vegna er mikið rætt um skipulag og endurskipulag kennaramenntunar til þess að tryggja, eftir því sem kostur er gæði kennslunnar. En það er ekki aðeins skipulagið sem er endurskoðað, heldur einnig inntak menntunarinnar, sem helst í hendur við inntak skólastarfs almennt. Rætt er hvernig megi betur tryggja menntun borgaranna til þess að þeir taki virkan þátt í samfélagi sínu og virði reglur þess, hvernig megi tryggja að þeir verði virkir í atvinnulífi og menningu bæði í nútíð og framtíð, m.a. með því að nýta sér nútíma tækni; hvernig megi tryggja að þeir skilji og virði mikilvægi sjálfbærni á heimsvísu og sinn þátt í henni og verði sívirkir í endurnýjun þekkingar sinnar.

Allt þetta helst í hendur. Grundvallar endurskoðun námskrár og verklags kallar á að menntun kennara verði endurskoðuð frá grunni.