Netla

Hafdís Guðjónsdóttir og Jónína Vala Kristinsdóttir. (2007). Kennarar eru á mörkum gamalla tíma og nýrra. Þróun námskeiðs um stærðfræðikennslu fyrir alla. Netla – veftímarit um uppeldi og menntun.
Í greininni er fjallað um rannsókn kennara á eigin kennslu á námskeiði í framhaldsdeild Kennaraháskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar var að þróa námskeið sem auðveldaði kennurum að skipuleggja stærðfræðikennslu fyrir börn með ólíkar forsendur til náms. Greining gagna leiddi til breytinga á kennsluháttum og viðfangsefnum námskeiðsins.

Ingvar Sigurgeirsson. (2003). Kennaramenntun og skólaþróun. Netla – veftímarit um uppeldi og menntun.
Í þessari grein fjallar Ingvar Sigurgeirsson um kennaramenntun í ljósi skólaþróunar. Greinin er byggð á erindi sem höfundur hélt á ráðstefnu sem Fræðslumiðstöð Reykjavíkur efndi til 13. febrúar 2003 undir heitinu Skóli á nýrri öld.

Auður Torfadóttir og Hafdís Ingvarsdóttir. (2002). Fagleg leiðsögn í kennaranámi. Netla – veftímarit um uppeldi og menntun.
Í greininni er fjallað um hlutverk leiðsagnarkennara í kennaranámi eða mentors eins og Bretar kalla hann, kennara sem tekur við kennaranemum á vettvangi skólans og er þeim til leiðsagnar, fyrirmyndar og stuðnings. Sagt er frá evrópska samstarfsverkefninu APartMent og auknum áherslum á þátt vettvangsnáms í kennaranámi.